Trukkarnir minna á sig
Nú þeyta trukkabílstjórarnir flautum sínum á Sæbrautinni. Hávaði og læti eru ekki rétta leiðin til að fá mig í lið með sér. Svona læti eru ágæt leið til að vekja athygli á sér og fá mann til að spyrja: Af hverju?
En svo þarf að svara því. Eftir því sem mér skilst vilja þeir fá ódýrari leið til að halda áfram að keyra vörur um landið. Þannig verður þetta bílaflaut bara læti. Ég veit af hverju lætin eru og þau hljóma eins og frekjuvæl.
Pff. Ég væri manna fegnastur að fækka umferð þessara stóru bíla um þjóðvegina og fá frekar hagkvæmar strandsiglingar.








