Vísvitandi hægvirk þjónusta?
Í móttökunni hjá Íslandspósti er nettengd tölva sem ætluð er viðskiptavinum. Tveimur mínútum eftir að ég tek mér númer í afgreiðsluröðinni, er komið að mér. Ég rétti stúlkunni pósttilkynninguna mína og stúlkan segir: “Tekur smá stund”. Nokkrum smástundum síðar kemur stúlkan til baka og tilkynnir að í pakkann hafi vantað reikning, eða eitthvað sem gefur til kynna heildarverðmæti vörunnar. Ég þyrfti að senda henni tölvupóst, eða koma með útprentun.
Ég var ekki alveg á þeim buxunum að fara alla leið heim eftir tölvupósti. Þá tók ég aftur eftir tölvunni og datt í hug að senda henni tölvupóstinn gegnum netið. Snilld! Nema að tölvan var yfirgengilega hægfara. Hún gat varla verið með meira en 28kb/sek. tengingu! Á meðan fer Linda út í bíl að gá hvort hún hafi tekið með útprentun af reikningnum. Ég var enn að bíða eftir að vefsíðan hlaðist upp þegar Linda kom með útprentunina!
Þá biðum við eftir afgreiðslustúlkunni sem tók við útprentuninni og sagði: “Tekur smá stund”. Þegar hún kom til baka var vefsíðan enn að hlaðast upp, svo ég sagði í hálfkæringi við stúlkuna: “Þessi tölva er alveg ofboðslega hægvirk”. Stúlkan svaraði: “Já, hún er bara fyrir einfalda hluti, ekki til að skoða vefinn”. “En ég þarf að opna síðuna til að geta sent þér tölvupóstinn,” benti ég henni á. Stúlkan svaraði: “Já, þú þarft að koma með hann með þér ef hann er ekki í pakkanum”.
Ég átta mig ekki á þessu. Var stúlkan að segja að tölvan væri vísvitandi hægvirk? Er verið að refsa fólki sem kemur ekki með útprentun? Fyrst tollurinn opnaði pakkann til að leita að útprentun, hvers vegna var það ekki tekið fram á tilkynningunni – með skýrum hætti.
Tvennt sem má laga (plús eitt atriði að lokum):
- Nýja tölvu og/eða betri tengingu. Það gefur fólki færi á að leiðrétta mistök á staðnum með skjótum hætti, í stað þess að senda það heim aftur.
- Endurhanna tilkynninguna. Taka fram með skýrum hætti að reikning vanti o.þ.h..
Er það ég, eða er ekki eitthvað iffí við að snúa þessu upp á viðskiptavininn? Að gefa í skyn að viðskiptavinurinn hafi nú einfaldlega klúðrað sínum málum. Ég var a.m.k. ekki sáttur. Stúlkan hefði getað lokað málinu með því að brosa kurteislega og bjóðast til að koma athugasemdinni til réttra aðila. Hvort sem hún hefði nú gert það eða ekki, þá hefði ég farið sáttur út.








