Vont merki með 5 ára fyrirvara

Sólveig benti mér á vef BBC þar sem verið er að fjalla um nýtt merki Ólympíuleikanna í London árið 2012. Ég þarf að gefa mér tíma til að velta þessu fyrir mér – því mér dettur ekkert gott í hug til að segja um merkið (hverjum fannst Ólympíuhringirnir virka svona litlir inni í bleiku klessunni?).
Að því sögðu, þá verður maður nú eiginlega að dást að blörbinu. Hvað fólk getur tekið saman af orðum til að útskýra svona hrylling:
“This is the vision at the very heart of our brand,” said London 2012 organising committee chairman Seb Coe.
“It will define the venues we build and the Games we hold and act as a reminder of our promise to use the Olympic spirit to inspire everyone and reach out to young people around the world.
“It is an invitation to take part and be involved.
Ef ég píri augun og horfi á þetta, þá get ég vel séð 2012. En er það eðlileg ætlun? Að maður þurfi að píra augun til að átta sig á merki?
Annars er ekkert ólíklegt þetta vaxi á mann. Eða eins og gamall vinur minn segir oft: Svo má illu venjast…








