Lýðveldisbyltingin (vinnuheiti)

LýðveldisbyltinginÉg má til með að beina fólki á vef Lýðveldisbyltingarinnar þar sem hægt er að taka þátt í að móta stefnu og markmið Lýðveldisbyltingarinnar (LVB).

Hér er lýsing á LVB af vef þeirra:

  • Lýðveldisbyltingin er kosningabandalag venjulegra Íslendinga sem vilja breytingar en ekki völd. Breytingarnar á stjórnmálaleikreglum snúast um að fjarlægja alræðisvald ríkisstjórnarinnar yfir þjóðinni, minnka flokksræði og færa almennum kjósendum beinna vald til að velja sína fulltrúa á Alþingi og geta veitt þeim nauðsynlegt aðhald á milli kosninga.
  • Lýðveldisbyltingin er sjálfseyðandi stjórnmálaafl. Það þýðir að bandalagið leysir sjálft sig upp þegar a) augljóst er að breytingarnar náist ekki eða b) þegar breytingarnar hafa klárlega tekið gildi.

Leave a Reply