Starfsmenn

LindaLinda Rós Ragnarsdóttir

Fjármálastjóri
GSM: 695 9272
Netfang: linda@hringbrot.is

  • Hringbrot, Frá 2002.
  • Destal, 2001.
  • Prentsmiðjan Oddi, 1997-2001.
  • Hönnunardeild Iðnskólans í Reykjavík, Útskr. 1997.

Starf Lindu í Prentsmiðjunni Odda gaf henni yfirgripsmikla þekkingu um vinnslu — í prentsmiðjum, frágang til prentunar og skil. Næst starfaði hún hjá Destal, dótturfyrirtæki Flugleiða, við vefhönnun á icelandtotal.is. Þar sá hún um all útlitshönnun vefsins.

Linda hefur glöggt auga fyrir letri og er einstaklega fær í að velja letur sem hentar hverju verkefni. Hún málar í frístundum og hélt sýningu á verkum sínum í Kaffitári (2002).

Auk þess að sinna fullu starfi sem annar hönnuða Hringbrots hefur Linda yfirumsjón með öllum fjármálum og reikningahaldi Hringbrots.

ÞorriÞorlákur Lúðvíksson

Grafískur hönnuður FÍT
GSM: 695 8400
Netfang: thorri@hringbrot.is

  • Íslenska auglýsingastofan, sumarið 1999.
  • Lítill heimur, 2000-2002.
  • Hringbrot, Frá 2002.
  • B.A. Grafísk hönnun frá Listaháskóla Íslands, Útskr. 2002.
  • Heimspekistúdent í Háskóla Íslands, 1993-1994.

Eins og Linda, sinnir Þorri öllum helstu hönnunarverkefnum. Vefforritun er þó algerlega í hans höndum. Hann kenndi sér CSS og XHTML með bókum og stúderingu á vefsíðum eins og A list apart.

Eitt aðaláhugamál Þorra er upplýsingahönnun — framsetning upplýsinga með myndrænum hætti. Þá með sérstakri áherslu á verk Edward Tufte, Donald A. Norman, Jef Raskin og Mario Garcia meðal annarra. Útskriftarverkefni hans frá Listaháskólanum fjallaði um upplýsingahönnun og tengsl hönnunar og listar (sjá ritgerðina Flóttinn frá flatlendinu sem verður sett hér inn fljótlega).

Þorri hefur haldið fyrirlestra um upplýsingahönnun fyrir verkfræðinema í Háskóla Íslands.