Hreint persónukjör meingallað?
Einar Björn Bjarnason stjórnmálafræðingur skrifar mjög áhugaverðan pistil um galla hreins persónukjörs á Wikisíðu Lýðveldisbyltingarinnar. Hér er brot:
Þetta getur orðið mjög ‘messy’. Ef þingið er skipað einkum einstaklingum, sem hver og einn er sérstakt framboð, þá mun skipun manna í nefndir á þingi, verða mjög flókin og “messy”. Þar sem hver og einn er flokkur, hefst væntanlega mjög flókið leikrit, þegar í upphaf þings, þ.s. samið er um nefndirnar. Væntanlega munu greiðar og fjármunir einnig, fara á milli manna, svo að þeir komist í þessi áhrifamiklu sæti. Ég tek fram, að spillingarhætta verður margföld, sbr. okkar kerfi.
Ég hef verið ötull talsmaður persónukjörs, en verð að viðurkenna að pistill Einars hafði talsverð áhrif á mig. En fyrst þetta er hægt á Írlandi og í Ástralíu — miklu miklu (miklu) stærri löndum en Íslandi, þá er ég ekki alveg tilbúinn að bekina pælingu Einars.
Hux hux hux.
[Viðbót] Á meðan ég hitaði mér upp spaghettíið frá því í gær velti ég þessu meira fyrir mér og setti svo eftirfarandi pælingu á eftir pistli Einars.
Ég er ekki jafn viss og Einar. Í dag þarf flokkurinn að komast að samkomulagi áður en flokkurinn sest að samningaborði og nær samkomulagi þar. Ákvörðunum hefur verið frestað í þinginu þar sem flokkur hefur ekki náð samkomulagi um málið. Er spillingarhættan minni innan flokkanna? Fara greiðar og fjármunir ekki má milli manna í flokkunum?








