Vilmund Gylfa á allra varir
Ég er fyrir löngu hættur að kippa mér upp við það þegar ég læri að hugmynd sem ég hef fengið hefur verið kynnt til sögunnar eða jafnvel framkvæmd einhvers staðar annars staðar. Samt varð ég undrandi (og svolítið skömmustulegur) að hafa ekki heyrt neitt af hugmyndum Vilmundar Gylfasonar þegar ég lærði að hugmynd mín um ný kosningalög er um það bil þrjátíu ára gömul.
Núna er málið að finna og kynna sér hugmyndir þessa merka manns. Það sem ég vil forðast, er að skoða persónuna of náið. Hvernig hann var, hvaða sigra hann átti og hvaða mistök hann gerði kemur málinu ekki við. Hugmyndirnar lifa og hugmyndirnar skulum við skoða.
Ein hugmynd sem ég hef heyrt er að fólk megi velja hvort það kjósi flokk eða fólk. Því er ég alfarið á móti. Það geta allir valið sér 1-10* manneskjur til að kjósa á þing.
Markmiðið er ljóst: Að losa okkur Íslendinga undan flokkapólitíkinni.
* sjá nánar í færslunni um ný kosningalög.








