Endurhönnun á hringbrot.net

Við erum að undirbúa smá snúning hér á vefnum okkar. Það skemmtilega er að WordPress kerfið býður einmitt upp á slíka snúninga, án þess að valda neinum vandræðum. Það minna skemmtilega er að ég er ekki PHP forritari og fer því fetið afar, afar hægt.
Aðalpælingin með endurhönnuninni er að koma upp forsíðu sem tekur aðeins á móti gestum (en hendir þeim ekki beint í hringiðuna), auk þess að aðgreina betur á milli bloggsins míns og verkefnanna. Eins ætlar Linda að fá sitt bloggpláss.
Hér eru skjáskot af skissunum. Annars vegar forsíðan og hins vegar dæmi um innri síðu. Hvernig líst ykkur á?









