Örstuttur samanburður við útlandið
Á mínum tiltölulega stutta ferli sem grafískur hönnuður hef ég verið svo heppinn að fá að grúska heilmikið í dagblaðahönnun og þeirri vinnu sem felst í að koma út dagblaði. Ástæða þess að ég nefni það sérstaklega er að ég sá frétt um fyrirlestur í Bandaríkjunum, þar sem fjallað var um upplýsingahönnun hjá New York Times. Ég verð bara að vitna í gaurinn:
He explained how a 30-person team creates the impressive infographics and visualizations we see on the newspaper every week. Matt emphasized their role as journalists (instead of illustrators) and explained how they get from raw data to finished graphical pieces that make information understandable for more than a million readers.
30 manna teymi býr til upplýsingagrafíkina hjá NYT. Hérna heima? Deildu í tíu og mínusaðu svo tvo frá. (Ef það).








