Stjarnfræðileg vitleysa

Það er skemmtileg mynd framan á 24 stundum í dag, þar sem leikið er með tungumálið og upplýsingagrafík. Myndin spilar á snjallan hátt með hugmyndina um stjarnfræðilegar upphæðir og setur upphæðirnar í samhengi með því að teikna þær á sólkerfið.

Þetta lúkkar, en hverju erum við nær? Og öllu mikilvægara: Hversu nálægt sannleikanum er myndin?

Ein helsta rökvilla í skýringarmyndum er hringformið. Það er erfitt, nær ómögulegt að bera saman hringi með einhverju viti. Að auki hefur hönnuðurinn sjaldnast fyrir því að reikna raunverulegt flatarmál, heldur margfaldar bara þvermálið. En jafnvel þó flatarmálið væri rétt reiknað, þá veit lesandinn heldur ekki hvort um er að ræða samanburð á flatarmáli eða rúmmáli (sem myndi skila allt öðrum stærðum).

Ef ég skil þetta rétt (hitt kemur stundum fyrir), þá á sólin að vera peningar sem við skuldum og pláneturnar peningar sem við höfum (eða gætum fengið). Þá eru innstæður sem ríkið ábyrgist sér-flokkur, hvorki skuldir né tekjur — bara upplýsingar um ábyrgð.

Hér er mín útgáfa. Minna sexí kannski, en þá spyr ég hver er tilgangur birtingarinnar? (Smellið á myndina til að sjá stærra eintak).

Hér sést klárlega að með öllum okkar þekktu leiðum í dag gætum við ekki aflað helmingi þeirra skulda sem þjóðarbúið skuldar. Þó erum við langt langt yfir innistæðum sem við höfum tryggt.

Verst er að myndin mín er byggð á þeirri takmörkuðu þekkingu sem ég hef á landsfjármálum. Gaman væri að heyra í einhverjum sem betur þekkir til en ég. Hvernig er hægt að gera enn betri skýringarmynd?

Leave a Reply