Frönsk súkkulaðikaka
Þessa uppskrift fékk ég hjá henni Lilju sem bjó í kjallaranum á Leifsgötunni þegar ég bjó þar. Hún gerði hana alltaf í eldfast mót en ég set hana í kökuform.
150 gr. smjör
150 gr. siríus súkkulaði
3 egg
2 dl. sykur
1 dl. hveiti
100 gr. heslihnetur fínt malaðar (má sleppa)
Bræðið smjör og súkkulaði í vatnsbaði. Þeytið egg og sykur saman og bætið svo smjörinu og súkkulaðinu saman við þegar það hefur kólnað aðeins. Setjið hveitið og hneturnar varlega í lokin með hræru.
Smyrjið og sáldrið hveiti í tertuform. (Ég nota yfirleitt springform) Bakið við 180° í ca. 35 mín.








