Marengsbomba Lindu

Array

Þessi terta er rosalega vinsæl í afmælum á heimilinu og ef hún er ekki á veisluborðinu fæ ég að heyra frá gestum að það vanti bombuna á borðið.

Marengsbotn
4 eggjahvítur
2 dl. sykur
1 dl. púðusykur
2 bollar Rice Krispies
Stífþeytið eggjahvítur og sykur. Setjið varlega saman við með hræru Rice Krispis. Skiptið svo marengsnum á 2 plötur. Bakið við 150° í 50 mín. Ég læt svo botnana vera inni ofninum yfir nótt.

Rice Krispies botn
100 gr. Siríus súkkulaði
100 gr. smjör
2 msk. síróp
Rice Krispies
Bræðið súkkulaði, smjör og síróp saman í Rice Krispies saman í potti. Bætið Rice Krispies út í. Ég set svo í hluta af Rice Krispies bráðinni í springform og frysti. Afganginn set ég í lítil muffins form.

Krem
3 eggjarauður
60 gr. flórsykur
50 gr. smjör
100 gr. rjómasúkkulaði
Bræðið smjör og súkkulaði í vatnsbaði. Hrærið á meðan eggjarauður og flórsykur og bætið svo út í smörinu og súkkulaðibráðinni. Þetta krem er svo smurt á botnana þegar kaka er sett saman.

Daginn áður en á að bera fram kökuna þá baka ég marengsinn og Rice Krispies botninn. Svo er kakan sett svona saman: marengs – rjómi – Rice krispies botn – rjómi – marengs.

Leave a Reply