Muffins

Array

Ofur einfaldar og góðar ljósar múffur með vanillukeim og súkkulaðibitum. Þessa uppskrift fékk ég frá Eddu mágkonu minni.

3 egg
1 bollar sykur
200 gr. smjörlíki (brætt)
250 ml. jógúrt – karamellu
2 1/2 bolli hveiti
1 tsk. matarsóti
1-2 tsk. vanilludropar
100 gr. suðusúkkulaði

Egg og sykur hrært vel saman. Restinni bætt út í og hrært aðeins meira. Sett í form og bakað við 180° í 10-12 mín. Fer eftir stærð formanna.

Ef ég vil setja skemmtilega litað krem á kökurnar þá nota ég stundum Betty vanillukrem og bæti matarlit út í.

Leave a Reply